Hvað er Tímapantanir.is ?
Tímapantanir.is er nethugbúnaður sem auðveldar fyrirtækjum og einstaklingum að halda utan um tímapantanir. Einn helsti kostur hugbúnaðarins er að ekki þarf að setja hugbúnaðinn upp í tölvuna heldur er hægt að nálgast hann í gegnum internetið hvar sem er í heiminum. Ekki er krafist þess að notendur séu tölvusnillingar heldur er uppsetning og vinna hugbúnaðarins á netinu skýr og auðveld fyrir alla. Hægt er að prófa kerfið okkar frítt í 30 daga.
Hversu mikið mun þetta kosta mig?
Tímapöntunarkerfið er frítt að prufa, en þó ekki í SMS áminningar útgáfu. Grunnútgáfa án SMS áminninga kostar aðeins 2.500 kr + VSK í framhaldi en með SMS áminningum 3.500 + VSK en svo er greitt fyrir SMS sem kerfið sendir út til áminningar. SMS pakkar eru seldir sérstaklega en þannig fer aldrei meir í SMS kostnað en þú hefur fyrirfram ákveðið.
Hvernig get ég notað kerfið ?
Fyrirtæki sem er ekki með tölvu á vinnustaðnum getur auðveldlega notað kerfið ef eigandi eða starfsmaður er með tölvu heima við.
Pantanakerfið er sett sem innskot á núverandi síðu eða hægt er að setja slóð yfir á pantanakerfið frá síðu þjónustuveitanda. Sé þjónustuveitandi ekki með síðu getur hann notað pantanasíðuna sem sína vefsíðu gagnvart viðskiptavinum.
Eigandi eða starfsmaður kemur reglulega með útprentun úr kerfinu um það sem hefur verið pantað á næstu vikum. Þetta er borið saman við pantanabókina en einnig er kerfið er stillt þannig að það sendir SMS ábendingu til eiganda eða starfsmanna þegar pöntun berst í gegnum vefinn. Þannig geta starfsmenn skráð þá pöntun á pantanabókina hjá sér. Sérstaklega er haldið utan um pantanir sem berast í gegnum síma og reynt er að skrá þær daglega í tímapantanakerfið. Þannig er hægt að vita bæði um pantanir sem koma gegnum netið eða í gegnum símann. Svona er hægt að stórauka þjónustuna við viðskiptavina sem geta pantað þegar þeim hentar og minnka símaálag í vinnunni. Til að byrja með má búast við að hringingar verði stærsti hluti pantana en á svona 3 mánaða tímabili er ekki ólíklegt að það hlutfall verði komið í um 20%.
Fyrirtækið getur að öðru leyti nýtt sér allt það sem kerfið býður upp á s.s. að senda viðskiptavinum sértilboð með netpósti eða SMS, látið marga vita í einu með SMS ef þjónustuaðili er veikur. Hægt er að ákvarða hverjir og hvenær sendar eru SMS áminningar. Einnig má skoða hve langt er síðan viss hópur hefur fengið vissa þjónustu og senda þeim hvatningu eða tilboð í SMS eða netpósti ef þeir panta strax.
Þarf ég að vista inn Tímapöntunar hugbúnaðinum til þess að nota kerfið?
Þú þarft ekki að vista hugbúnaðinn til þess að nota kerfið. Allt sem þú þarft er Internet tengingu í tölvuna þína.
Hvernig virkar Tímapöntunar kerfið með heimasíðunni minni?
Ef þú ert nú þegar með heimasíðu, myndir þú einfaldlega bæta við innskotstöflu (Iframe) á síðuna þína eða slóð yfir í tímapantanakerfið þitt. Innskotstöfluna nálgastu þegar þú ert búin að skrá þig inn og ferð inn í fyrirtækjaupplýsingar. Þaðan tekurðu html kóðan og setur inn á heimasíðuna þína. Ef þú ert ekki með heimasíðu, útvegum við þér hana án aukagjalds. Ef þú átt ekki þitt eigið lén (URL) færðu frá okkur "þittnafn.timapantanir.is" þar sem að "þittnafn" er það nafn sem þú hefur skráð inn við upphafskráningu. Með þessu geta viðskiptavinir þínir bókað tíma hjá þér á þinni heimasíðu. Við mælum með að þú kynnir viðskiptavinum þínum fyrir heimasíðunni þinni og þeirri nýju þjónustu sem þú ert nú að bjóða upp á. Einnig geturði beint þínu nafni á þína síðu hjá okkur þannig að slóðin sé Þittnafn.is.
Eru gögnin mín örugg?
Já. Við höfum öflugar varúðarráðstafanir til að tryggja gögn, persónuvernd og öryggi. Við erum með mjög stranga reglu hvað varðar meðferð á persónuupplýsingum og seljum ekki gögn um viðskiptavini okkar (né gögn um viðskiptavini þeirra). Gagnagrunnur er vistaður milli véla einu sinni á dag og á milli landa einu sinni í viku.
Get ég hringt ef ég hef spurningar varðandi tímaáætlunar hugbúnaðinn?
Já. Þér er frjálst að hringja hvenær sem er á opnunartíma fyrirtækisins (10:00 til 16:00) í símanúmerið okkar er 568-9500.
Er hægt að flytja gögn úr tímapöntunar kerfinu?
Já, þú getur flutt bæði viðskiptavini og tímapantanir hvenær sem er í Google dagatal og docs.
Eru einhverjar takmarkanir á Tímapöntunar prufapakkanum?
Nei á meðan prufutími stendur yfir hefur þú aðgang af öllum hugbúnaði Tímapöntunar kerfisins, nema að SMS áminningum. Til þess að virkja þær þarftu að kaupa SMS pakka.
Get ég tekið við greiðslu í gegnum Tímapöntunar kerfið?
Já, þú getur bent viðskiptavinum þína á að greiða þegar þeir panta tíma. Þá er hægt að taka við greiðslu í gegnum Borgun.is eða Paypal. Hægt er að skylda greiðslu eða hafa hana valkvæma fyrir viðskiptavini.
Greiðslan fyrir áskriftinni minni tókst ekki, verður pöntununum mínum eytt?
Tímapantanir.is mun ekki undir neinum kringumstæðum fjarlægja bókuðu pantanirnar þínar, en ef greiðsla tókst ekki hefur þú ekki á þeim tíma aðgang að bókuðu pöntununum þínum. Það er því mikilvægt fyrir þig að þegar þú ætla að hætta með kerfið að skrifa niður þær pantanir sem eru bókaðar á næstunni. Ef greiðsla mistókst þá vinsamlegast reynið aftur síðar. Ef ekki hefur náðst að greiða á tilsettum tíma er lokað fyrir pantanir, en allar þær pantanir sem hafa verið gerðar áður er hægt að nálgast innri vefnum um leið og greiðsla hefur gengið í gegn.
Hvernig get ég hætt við áskriftina mína?
Þú getur hætt við áskriftina hvenær sem er hjá Tímapantanir.is. Hafðu í huga að þegar tíminn sem greitt hefur verið fyrir rennur út að þá hefur notandi ekki lengur aðgang af þeim tímapöntunum sem pantað hefur verið gegnum kerfið.
Ef ég vil nota Tímapöntunar kerfið fyrir hárgreiðslustofuna mína / Tennis völlinn / Ráðgjafa fyrirtæki, þarf ég að hafa internettengingu á öllum stöðum?
Ef þú átt nokkur mismundandi fyrirtæki geturðu notað sömu heimsasíðuna fyrir öll fyrirtækin, en við mælum með að þú fáir þér sér heimasíðu frá okkur fyrir hvert fyrirtækið. Ef þú ert ekki með tölvu og internet tenginu á einum eða fleirum stöðum þá leysum við það vandamál. Lítið á eftirfarandi dæmi: Bátaleiga notar Tímapantanir.is til að bóka báta, en þeir gera ekki verið með tölvu í bátaskýlinu. Viðskiptavinum eru leyft að bóka bát gegnum internetið með viku fyrirvara. Fyrirtækið þarf því að prenta einu sinni í viku út pantanirnar sem gerðar hafa verið fyrir vikuna. Með þessu fyrirkomulagi er ekki hægt að panta tíma í þeirri viku sem er að líða nema gegnum síma. Ef að síminn fyrir bátaskýlið er staðsett annarstaðar þar sem aðgangur er í tölvu þá getur starfsfólkið bókað tíma gegnum tímapöntunar kerfið og látið kerfið senda starfsmönnunum sms um bókaða þjónustu. Þetta fyrirkomulag er stillt í innra kerfinu með valmöguleika hversu löngum fyrirvara á að láta starfsfólk vita um skipulagða þjónustu. Með þessu er komið í veg fyrir tvíbókanir.
Hvernig kem ég í veg fyrir að viðskiptavinir gera pantanir með stuttum fyrirvara?
Til að koma í veg fyrir þetta höfum við sett upp stillingu þar sem þú getur valið tíma fyrirvara með því hversu mörgum klukkutímum eða dögum viðskiptavinur þarf að vera búin að panta hjá þér fyrir pantaðan tíma. Til dæmis í fyrirtæki sem ekki er með tölvu á staðnum getur haft lokað fyrir pantanir í vikunni sem er að líða en opið fyrir alla daga eftir frá með vikunni sem gengin er í garð. Á meðan vikan er að líða þá þurfa viðskiptavinir sem vilja fá tíma í vikunni að hringja og athuga hvort laus tími sé til. Til þess að sjá lausa tíma í vikunni þá þarf að vera búið að skrá niður eða prenta út dagskrá vikunar með öllum þeim pöntunum sem gerðar hafa verið fyrir vikuna.
Hvaða internet þjónustur styðja Tímapöntunar kerfið?
Tímapantanir.is virkar í Internet Explorer 7 & 8, Safari 4 & 5, Firefox 1.5, 2, 3, 3,5 og 3,6, Opera 9 & 10, og Google Chrome. Það er í grundvallaratriðum allir internet þjónustur þarna úti, svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur hvort kerfið mun virka almennilega í tölvum viðskiptavina þinna. Við mælum með að þegar þú ert á innra kerfinu að nota Google Chrome eða Firefox. Auk þess er til útgáfa af Tímapantanir.is fyrir farsíma á borð við iPhone, Blackberry og alla þá síma sem supporta Javascript. Þetta leysir vandamál fyrir þau fyrirtæki sem ekki hafa tölvu á staðnum en yfirmenn eru með IPhone eða Blackberry komast inn á innra kerfið til að bóka tíma og annað.
Hvaða tungumál er hægt að stilla Timapantanir.is á ?
Allt sem þú og viðskiptavinir þínir geta séð eins og Tímapöntunar síðan, staðfesting á vefpósti og sms skilaboð o.s.fr er allt á íslensku. Kerfið er einnig hægt að fá á ensku, rússnesku og brátt á frönsku. Ef tungumálið þitt er ekki enn skráð og þú hefðir áhuga á að aðstoða okkur við þýðingu þá er þér velkomið að hafa samband við okkur.
Hvaða aukaþjónustu mun Tímapantanir.is bjóða upp á ?
Nú þegar eru við með:
Vörukostnað; Með þessari aukaþjónustu geturðu skráð kostnað á vörum sem falla á tiltekna þjónustu og haldið þannig um heildarkostnað. T.d gott fyrir verkstæði eða þá sem eru að framkvæma þjónustu til lengri tíma.
Aukaupplýsingarsvæði vegna þjónustu; Aukareitaþjónustan gerir þér kleift að búa til aukareiti til þess að spyrja viðskiptavini þína um frekari upplýsingaren það sem kerfið býður upp á T.d kennitölu, bílnúmer, o.s.fr.
Staða; Stöðu aukaþjónustan gerir kleift að búa til stöðu á veitta þjónustu. Til að mynda getur staða verið: Pöntun komin í kerfi, viðskiptavinur kominn á staðinn og bíður í afgreiðslu, þjónustu lokið og viðskiptavinur búinn að greiða. Hægt er að láta hvað stöðu fyrir sig hafa lit til þess að auðvelda fyrir þér að sjá hvort búið sé að sinna öllum viðskiptavinunum yfir daginn. Þá væri t.d þegar viðskiptavinurinn er búin að borga og fara litaður grænn. Þá eftir daginn ætti dagbók dagsins að vera öll græn.
Greidd þjónusta; Greiðslukerfið gerir þér kleift að sýna verð á þjónustum og jafnvel að taka á móti greiðslum gegnum kreditkortakerfin Borgun.is og Pay-Pal.
Við munum með tímanum bæta við ýmsum aukaþjónustum sem hægt er að fá gegn vægu gjaldi. Ef þér dettur í hug aukaþjónustu sem bætir tímapöntunar kerfið þá er þér velkomið að hafa samband við okkur.
Ég reyndi að skrá mig inn en fékk ekki staðfestingu í tölvupósti?
Netpóstskilaboð villast stundum í póstkerfinu. Það sem þú getur prófað er: (1) athugaða rusl möppuna, (2) bíddu í smástund, þetta gæti komið, (3) skráðu þig aftur með annað netfang.
Get ég notað Tímapantanir.is kerfið fyrir Hótel eða Veitingarstaði?
Allt er leysanlegt en við biðjum ykkur að hafa samband við okkur gegnum vefpóst eða hringja í síma 568-9500.
Við munum leysa það á næstunni að koma upp tímapöntunar kerfi fyrir hótel og veitingarstaði.
Get ég notað mitt eigið lén ("URL") með tímapöntunar kerfinu á heimasíðunni frá ykkur í stað þittnafn.timapantanir.is?
Já, þú geta haft þitt eigið lén sem bendir til Tímapantanir í stað "þittnafn.timapantanir.is" en við tökum fyrir það 10.000 kr + VSK í uppsetningargjald. Þar að auki er hægt að laga útlitið á tímapöntunar kerfinu til þess að passa við þína síðu. Tímapöntunar kerfinu getur líka komið inni á heimasíðuna þína með Innskotramma (Iframe) sem mun líta út eins og vefsíðan sé samþætt.
Get ég sjálf/ur bókað tíma í tímapöntunar kerfinu ?
Það er ekkert mál fyrir þig að bóka tíma hjá þér, og viðskiptavinir þínir verða áminntir um þennan tíma. Ef þú hefur tölvu í fyrirtækinu þínu þá getur einnig tekið við pöntunum þar gegnum síma. Það er góð hugmynd að skrá sig út sem stjórnandi síðunar og prófa að panta tíma hjá fyrirtækinu þínu til þess að sjá hvort pantanir virka eins og ætlast er til.
Get ég sett á heimasíðuna sem þið skafið mér fyrirtækja lógóið og mynd efst á síðuna?
Já, þú hefur möguleika á að setja hvaða mynd eða lógó efst á vefsíðuna. Þú þarft að hafa samband við okkur og við munum setja inn myndina eða lógóið inn fyrir þig.
Hverjir fá sent til sín sms?
Þú og starfsfólkið þitt getið fengið sms tilkynningu um leið og pantað hefur verið ný þjónusta. Einnig er mögulegt að senda út sms áminningu til þinna viðskiptavina og starfsfólks einhverjum tíma áður en þjónusta á að hefjast. Þú velur hversu löngu fyrirvara á að senda SMS-ið út áður en tíminn á að hefjast.
Aðgangur gegnum IPhone og Blackberry.
Hægt er að hafa aðgang á Tímapantanir.is á meðan að þú ert á ferðinni. Allir þeir símar sem eru með Javascript support eins og Blackberry og IPhone geta komist inn á innri vefinn, þar sem hægt er að gera athuganir, breyta, bæta við nýjum pöntunum, blokka fyrir tíma, uppfæra viðskiptavini eða bæta við upplýsingum um starfsfólk hvar sem er, hvenær sem er.
Munu viðskiptavinir mínir þurfa að hringja í mig til að hætta við bókaðan tíma?
Þú ræður þessu. Þú hefur þann möguleika á að leyfa innskráðum viðskiptavinum þínum að hætta við pantaðan tíma gegnum tímapöntunar kerfið.
Hversu langt fram í tímann get ég skipulagt pantanir?
Það er hægt að panta allt að 6 mánuðum fram í tímann. En hafðu í huga að þegar þegar þú hættir að greiða fyrir Tímapöntunarkerfið þá hefur þú ekki lengur aðgang að þeim pöntunum sem skráðar hafa verið fram í tíman. Það er því mikilvægt að skrá niður pantanirnar sínar rétt áður en áskriftin rennur út eða setja þær yfir í Google docs.
Get ég stofnað annað öryggisstig fyrir starfsmennina mína?
En sem komið er virkar kerfið þannig að allir notendur hafa jafnan aðgang. En unnið er að því að búa til þrjú öryggisstig:
- Notandi (almennt starfsfólk)
- Stjórnandi (yfirmenn eða vaktstjórar)
- Eigandi reiknings (Eigendur eða forstjórar fyrirtækis)
Ég þarf hjálp við að setja upp kerfið. Hvar á ég að fá hjálp?
Vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á timapantanir@timapantanir.is eða hringdu í síma 568-9500 og við munum aðstoða þig við að setja upp kerfið.
Hvernig veit Tímapantanir hvaða tímar eru í boði hjá mér?
Tímapantanakerfið mun sýna hvað tímar eru í boði, byggt á þínum óskum fyrir venjulega vinnuviku. Kerfið athugar þá hvort þú hafir pantaðan tíma í vikunni sem er að fara að líða áður en viðskiptavinir þínir fá að sjá hvaða tímar eru í boði. Til að byrja með þá verðurðu að stilla viðverðu fyrir hvern dag vikunar. Til dæmis mánudagur frá kl 9 til 18. Þriðjudagur frá kl 8 til 17 o.s.fr.
Ef þú ert ekki með opið ákveðin dag vegna persónulegra ástæðna eða ert í orlofi þá getur breytt framboði lausra tíma hjá þér í "Tími upptekin" þannig að þínir viðskiptavinir séu ekki að panta tíma hjá þér þegar að þú ert í fríi. Með þessu veit Tímapantanir.is hvenær þú ert laus eða upptekin.
Ég get annað fleiri en einum í einu (t.d. námskeið) þannig að ég þarf að leyfa margfaldar bókanir. Getur Tímapantanir.is gert þetta fyrir mig?
Já, Tímapantanir.is leyfir þér að gera það. Til dæmis ef panta á far með rútu þá geta margir pantað tíma hjá rútunni í sömu ferð, sama á við um námskeið.
Til þess að stilla þetta þarf að fara inn í innri vefin, þar inn í Þjónustur og í Starfsfólk. Þar til hægri getur breytt upplýsingum um hvern "Starfsmann" í þessu tilviki rúta og sett í dálkinn Fjöldi leyfðra bókana í töluna sem er með fjölda sæta sem rútan býður upp á. Með þessari aðgerð er þér kleift að bóka margar pantanir á sama tíma, á sama "starfsmanninn". Þessi uppsetningar valkostur er aðeins í boði fyrir starfsfólk, ekki fyrir viðskiptavini þína til að breyta.
Geta aðrir séð upplýsingar um tímapantanirnar mínar?
Nei aðgangur að tímapöntunum er varið með lykilorði og geymt í mjög öruggu umhverfi. Engin önnur manneskja getur séð pantanirnar þínar nema starfsmennirnir þínir sem eru skráðir undir fyrirtækinu þínu.
Ég rek Snyrtistofu sem er með eina tölvu sem allir starfsmenn nota til að bóka tímana sína. Hvað er besta lausnin fyrir okkur?
Í svona vinnu umhverfi er alls ekki nauðsynlegt að hver og ein starfsmaður hafi sína tölvu eða að hver og ein sé með sinn sér aðgang. Eigandi aðgangsins á tímapöntunar kerfið ræður hverjir hafa aðgang til að skrá sig inn. Það er því mögulegt að starfsmenn fái t.d. sms tilkynningu þegar að pantaður hefur verið hjá honum þjónusta eða rétt áður en þjónusta á að hefjast en geti ekki sjáfir bókað tíma í innra kerfi. Þetta er val eiganda þjónustunnar.
Hvenær fær viðskiptavinur minn staðfestingarpóst um tímapöntun?
Þegar að viðskiptavinurinn pantar tíma á internetinu fær hann samstundis staðfestingu á tölvupósti og/eða sms skilaboð.
Mun ég fá tilkynningu þegar annað starfsfólk skráir niður pantanir fyrir mig?
Já, viðeigandi starfsmaður fær sms tilkynningu. Þetta gerir þér kleift að þurfa ekki að eyða tíma í að fara fyrir framan tölvuna til að athuga með næsta bókaðan tíma.
Hvernig sendi ég tölvupóst til viðskiptavina minna um að núna geti þeir bókað tíma hjá mér gegnum tímapöntunar kerfið?
Undir Þjónustur verður hnappur sem heitir Samskipti sem gerir þér kleift að senda viðskiptavinum þínum tölvupóst um tilboð, lausa tíma eða annað.
Sækja handbók

