Leyfðu þínum viðskiptavinum að panta tíma þegar þeim hentar
Þegar þú byrjar að nota Timapantanir.is gefurðu þínum viðskiptavinum kost á því að panta sér tíma þegar þeim hentar og þá án þess að trufla þig við þín störf. Allir þekkja það að muna eftir að panta í hárgreiðslu á kveldin en gleyma því svo daginn eftir. Reynsla notenda af samskonar kerfum erlendis sýnir að þeir sem nota svona tímapantanakerfi geta aukið tekjur sýnar verulega. Ef þú auglýsir á Facebook geta líka þeir sem heimsækja síðuna þína pantað sér tíma þegar þeir skoða síðuna, daginn eftir gætu þeir verið búnir að gleyma þér og þinni þjónustu.
Láttu Tímapantanir.is vinna fyrir þig
Þú getur hætt að nota pantanabókina ef þú byrjar að nota þetta kerfi. Þú getur komist í það hvar sem þú ert í netsambandi og þannig athugað hvað er í gangi. Ef þú átt stofu, getur þú verið erlendis og séð samt nákvæmlega hvað er að gera hjá starfsmönnum þínum. Þú getur skoðað hvaða þjónustur er búið að panta, hvaða starfsmenn eru bókaðir og hvernig útlitið er fyrir vikuna. Þægindin við að nota Tímapantanir.is eru svo mikil að þú munt ekki skilja hvernig þó fórst að án þess.
Gerðu pantanakerfið persónulegt með myndum af starfsmönnum og þjónustum sem boðið er upp á
Bókunarkerfið býður upp á að settar séu inn bæði myndir af starfsmönnum og þjónustum. Þetta getur oft hjálpað viðskiptavinum sem muna hjá hverjum þeir voru, en muna kannski ekki nafnið hans. Hægt er að setja inn lýsingar á þjónustum og starfsferil starfsmanna sem birtist viðskiptavinum sem nota kerfið.
Láttu kerfið senda sjálfkrafa SMS áminningar um tímapantanir
Hægt er að láta kerfið senda SMS skilaboð til þjónustuaðila og viðskiptamanna þegar viðskiptavinur pantar og svo líka sem áminningu áður en viðskiptavinur á að mæta í tímann. Reynslan sýnir að hver þjónustuaðili getur verið að missa af 3-7 viðskiptavinum í hverri viku vegna þess að viðskiptavinir einfaldlega gleyma því að mæta í annríki dagsins. Sumir hafa reynt að leysa þetta með því að senda viðskiptavinum skeyti að morgni dags en það mun samt þýða að nokkrir viðskiptavinir hverjum mánuði munu gleyma því. Í þessu tímapantanakerfi, geturðu sjálf/ur valið áminningartímann sem notaður er til að minna viðskiptavini á mætingu og er þá algengt að nota 60 - 90 mínútur, til þess að tryggja að sem flestir muni komast í þjónustuna. Vegna þess hve ódýrt kerfi Tímapantana er, má segja að almennt gildi að ef aðeins 1 aðili man eftir því að mæta, hefur kerfið þegar borgað sig fyrir þann mánuðinn en þú ert auðvitað að fá miklu meira en bara það.
Þitt eigið lén á síðuna
Þegar þú gerist viðskiptavinur Tímapantana, færðu þína eigin vefsíðu. Ef þú hefur enga vefsíðu er tilvalið að nota þessa síðu sem aðalsíðuna þína, en á henni geturðu sett inn þinn eigin haus, þú getur skrifað hvað sem er á forsíðuna, þú getur sett inn fréttir með því að nota frétta "plugin" og staðsetning fyrirtækisins þíns sést vel á korti á forsíðu. Fyrir þá sem vantar heimasíðu og vilja einfalda lausn er þetta frábært. Ef þú átt eigið lénnafn, getum við sett það upp fyrir þig samkvæmt verðsskrá svo heima og pöntunar síðan verði ÞITTNAFN.is.
Iframe fyrir þá sem eiga heimasíðu
Mörg fyrirtæki eiga þegar uppsetta heimasíðu og fyrir þá er tilvalið að not innskotslausnina (Iframe). Þú finnur kóðann inn í kerfnu, tilbúinn til að smella á síðuna þína, hvar sem þú vilt hafa hana. Þannig heldurðu viðskiptavinum á þinni eigin síðu á meða þeir framkvæma pöntunina.
Flokka saman þjónustur
Í tímapöntunarkerfum getur oft orðið ljótt að sjá langa runu af þjónustum. Hjá Timapantanir.is geturðu flokkað saman samskonar þjónustur. Sett inn mynd af bæði þjónustuflokknum og myndir af þjónustum, og þannig leyft þínum viðskiptavinum að velja á fallegan myndrænan máta viðeigandi þjónustu. Ef þú ert með fáar þjónustur, þarftu ekki að nota flokka og getur bara raðað þeim upp í eina runu að þinni vild.
Ótakmarkaður fjöldi þjónusta og vinnustöðva (starfsmanna)
Þú getur alltaf skráð eins mikinn fjölda af þjónustum og vinnustöðvum eins og þú þarft á að halda. Engar takmarkanir eru hjá okkur varðandi það.
Staða þjónustu
Fyrir stærri aðila þar sem til dæmis í afgreiðslunni er ekki sami aðili og í þjónsutunni, getur verið gott að nota stöðu þjónustu. Þá er hægt að skrá viðskiptavin til dæmis sem:
- kominn á staðinn
- er í þjónustu
- farinn og búinn að greiða
Sendu tilboð til viðskiptamanna með netpósti eða SMS
Einn af bestu eiginleikum kerfisins er sá að þú getur sent völdum viðskiptavinum tilboð með netpósti eða SMS. Til dæmis væri hægt að velja alla viðskiptavini Siggu sem hafa ekki komið í hárlitun í meira en 6 vikur og senda þeim tilboð um hárlitun. Þannig má fá hröð viðsbrögð ef útlit er fyrir að lítið sé að gera á einhverjum tímapunkti.
Bættu við aukaspurningum um leið og viðskiptavinur pantar
Hægt er að fá nánari upplýsingar um hvað viðskiptavinur óskar eftir með því að nota aukaspurningar. Þannig geturðu sem dæmi spurt viðskiptavin um hverslags klippingu hann vantar (særa, stytta top, eða eitthvað annað). Einnig gætir þú spurt um hvers slags lit, óskað er eftir til þess að vera viss um að eiga það á lager þegar viðskiptavinur kemur. Þessum spurningum hagar þú að þinni vild og getur sett þær sem nauðsinlegar að svara, eða bara valkvæmar.
Sýndu margar myndir með þjónustum
Myndir segja þúsund orð svo það getur verið gott að setja inn fleiri en eina mynd af þeim þjónustum sem þú veitir. Fyrir til dæmis þá sem taka túrista í borgargöngu (city walk) að þá er hægt að sýna myndir af nokkrum stöðum sem verða heimsóttir og þannig efla enn frekar áhuga þess sem er að panta til að klára pöntun. Þetta má að sjálfsögðu gera fyrir hvaða þjónustur sem þú býður upp á.
Takmarkaðu lágmarks og hámarkstíma fyrir pantanir
Oft getur komið sér vel að takmarka hve löngu áður en þjónusta er veitt, sé hægt að panta tíma. Dæmi um þetta væri ráðgjafi sem aðeins leyfir opnar tímabókanir á fimmtudögum og föstudögum eftir hádegi. Ef enginn er búinn að panta tíma á mðvikudegi, vill þessi ráðgjafi geta skipulagt þennan tíma í eitthvað annað og því leyfir hann ekki bókanir nema með meira en tveggja daga fyrirvara. Sömuleiðis, er hann kannski ekki viss hvar hann er staddur eftir 3 mánuði og takmarkar því hámarkstíma bókana við 3 mánuði. Þessar tímasetningar geta notendur sett eins og þeim hentar best.
Leyfðu viðskiptavinum að greiða eða greiða inn á pöntun um leið og hún er gerð
Þú getur valið að taka á móti greiðslum fyrir þjónustur sem þú býður upp á. Þannig getur þú fengið greitt áður en þjónustan er framkvæmd og þannig sparað tíma við að taka á móti greiðslunni við lok þjónustu. Einnig geturðu notað þetta til að fá greitt inn á bókaða þjónustu og þannig takmarkað afföll enn frekar.
Kostnaðarskráning
Ef um er að ræða þjónustur sem til dæmis spanna lengri tíma er mögulegt að halda utam um kostnaðrliði sem tengjast viðkomandi verki. Þannig getur einhver annar framkvæmt afgreiðsluna þegar að henni kemur þó sá sem gerði þjónustuna sé ekki lengur við. Þetta gæti til dæmis komið sér vel fyrir verkstæði.
Mismunandi vinnudagsskrá fyrir mismunandi starfsmenn
Á flestum vinnustöðum er það þannig að þar eru starfsmenn sem ekki vinna á sama tíma. Þess vegna býður tímapantanakerfið upp á að fyrirtækið sé með sinn opnunartíma en svo geta allir starfsmenn haft sinn eigin opnunartíma innan tíma fyrirtækisins.
Viðskiptavinir þínir fá sitt eigið vefsvæði
Þegar þinn viðskiptavinur skráir sig inn í kerfið, getur hann með því að smela á nafnið sitt séð allar pantanir sem hann hefur gert og með pantanir sem enn eru ekki afgreiddar, getur hann afpantað. Í slíkum tilfellum fær þjónustuaðili sendan póst með upplýsingum varðandi það.
Leyfðu notendum að nota Facebook og OpenID innskráningu
Notendur þínir geta á sérlega einfaldan máta skráð sig inn og pantað tíma ef þeir eru innskráðir á Facebook, eins og flestir tölvutengdir Íslendingar eru í dag. Það eina sem þeir þurfa að gera er bara að smella á Facebook innskráning og þá eru þeir tilbúnir að panta tíma. Við gerum þó kröfu um að þeir leyfi að netpóstur þeirra sé skráður í kerfið svo þú getir haft samband við þá.
Sækja handbók

